Skólahópur Regnbogans í heimsókn á skólasafni
Mánudagana 11. og 18. janúar komu kátir krakkar frá leikskólanum Regnboganum í heimsókn á skólasafnið. Í upphafi hlustuðu skólahóparnir á fróðleik um kærleikann sem er lífsleikniþema skólans um þessar mundir. Börnin hlýddu einnig á lestur sögunnar um Bálreiðu Bínu sem þau myndskreyttu af mikilli vandvirkni. Myndirnar voru síðan límdar á karton og fengu börnin að taka það með sér á leikskólann. Að lokum fengu börnin að velja sér bækur að láni. Börnin voru bæði stillt og prúð og það var virkilega skemmtilegt að fá þau í heimsókn.

Mánudaginn 2. nóvember fékk skólasafnið góða gesti í heimsókn. Skólahópur Kvarnaborgar kom í heimsókn. Skólasafnskennari las fyrir börnin söguna Vertu ekki hræddur við myrkrið bangsi litli og Álfasögu um þakklæti. Börnin hlustuðu á sögurnar af athygli og teiknuðu síðan bókamerki með persónum úr sögunum. Að lokum fengu börnin að velja sér bækur sem þau tóku með sér á leikskólann. Börnin voru til fyrirmyndar og var heimsóknin hin ánægjulegasta.
Mánudaginn 16. mars komu áhugasamir gestir í heimsókn á skólasafnið. Leikskólinn Kvarnaborg hafði boðað komu sína með 12 barna leikskólahóp. Skólasafnskennari las fyrir börnin söguna
Skólasafnskennari tók á móti hópnum, sýndi þeim safnið og las fyrir þau söguna "Vetur í Múmíndal" eftir Tove Jansson. Að því loknu myndskreyttu börnin valin atriði úr sögunni. Var þeim mikið hrósað fyrir vönduð vinnubrögð og prúðmannlega framkomu. Í lok heimsóknarinnar völdu börnin bækur til að taka með sér á leikskólann og fengu jafnframt bókamerki að gjöf frá skólanum.