Skólahópur frá Regnboganum
Skólasafn Ártúnsskóla fær oft góða gesti í heimsókn. Skólahópur frá leikskólanum Regnboganum heimsótti safnið nýverið ásamt leikskólakennaranum sínum. Börnin fengu leiðsögn um safnið og hlustuðu á söguna Skilaboðaskjóðan eftir Þorvald Þorsteinsson. Að lestri loknum fengu börnin að hvísla skilaboðum í pokaskjóðu, sem þau höfðu myndskreytt og bundið var kirfilega fyrir. Eftir að hafa skoðað bangsa, bikara og aðra spennandi hluti í eigu safnsins fengu börnin að velja bækur sem þau tóku með sér á leikskólann. Það er alltaf jafn gaman að taka á móti prúðum og stilltum leikskólabörnum Regnbogans.
Sjá myndir
