Áhugasamir nemendur á skólasafni
Á skólasafni Ártúnsskóla hefur verið unnið fjölbreytt starf í vetur. Á safnið koma heilir bekkir í einu og því er unnið mikið í hópvinnu og paravinnu, auk þess er einstaklingsvinna þar sem það á við.
Elstu bekkirnir vinna mest í efnis- og heimildakönnun ásamt lausnarleitarnámi (Problem-Based Learning) með verkefnakynningu og jafningjamati í lokin. Sem uppbrot er farið í ratleiki á safninu.
Yngri bekkirnir vinna að efniskönnun í hópum, bæði af neti og úr bókum. Verkefnin eru misþung eftir aldurshópum og mislöng eftir getu hvers og eins. Auk þess er samlestur, upplestur og sögugerð, ásamt lesskilningsverkefnum þar sem málvitund nemenda er aukin.
Nemendur eru áhugasamir við vinnu sína á safninu eins og sjá má á myndunum.
