Fréttir frá skólasafni Ártúnsskóla

Norræna bókasafnavikan

bokMánudaginn 15. nóvember hefst Norræna bókasafnavikan.  Tilgangurinn er að vekja athygli á norrænum bókmenntum og frásagnahefð.  Í heila viku er boðið upp á upplestra, sýningar, umræður og aðra menningaratburði á þúsundum bókasafna, skóla og samkomustaða um öll Norðurlöndin.  Að þessu sinni er þema ársins „Norrænn húmor"og verður fjölbreytt dagskrá á bókasöfnum landsins tileinkað því viðfangsefni.  Texinn sem valinn hefur verið fyrir börn er  „Í búðinni hans Mústafa" eftir Jakob Martin Strid.

Skólasafnið mun sjá um kynningu á bókinni í kennslustundum eftir því sem við á.