Bangsadagur í Ártúnsskóla
Föstudaginn 28. október verður bangsadagurinn haldinn hátíðlegur í Ártúnsskóla. Af því tilefni koma nemendur og starfsfólk með uppáhaldsbangsann sinn í skólann.
Þennan dag er 4. ÁK með föstudagssamveru kl. 8:45 og hún verður tileinkuð böngsunum okkar.
