Skólasel er frístundaheimili Ártúnsskóla og er staðsett inni í skólahúsnæðinu. Þar er boðið upp á fjölbreytt tómstundastarf þegar hefðbundnum skóladegi 6 – 9 ára barna lýkur. Beinn sími í Skólasel er 517-3531 og gsm númer er 664-7621.
Leiðarljós frístundaheimilanna er að hver einstaklingur fái að njóta sín og þroskast í umhverfi sem einkennist af hlýju, öryggi og virðingu. Lögð er áhersla á að þroska félagslega færni í samskiptum í gegnum leik og starf sem og virðingu fyrir sjálfum sér, öðrum og umhverfi sínu. Frístundaheimilin leitast við að nota lýðræðislega starfshætti, efla hæfni barnanna til að móta sér sjálfstæðar skoðanir og hafa áhrif á umhverfi sitt og aðstæður.
Mánaðargjald frístundaheimilanna er 11.900 krónur fyrir fimm daga vikunnar en einnig er hægt að sækja um færri daga í viku. Veittur er 75% systkinaafsláttur af frístundagjaldi vegna annars barns og 100% vegna þriðja. Gjald fyrir síðdegishressingu í Skólaseli er 3450 krónur á mánuði. Nánari upplýsingar um gjaldskrá má finna í gjaldskrá frístundaheimilanna.
Hægt er að nota frístundakort til greiðslu dvalargjalda á frístundaheimilum. Nánari upplýsingar um notkun frístundakorts.
Verkefnastjórar Skólasels eru Magnea Einarsdóttir og Erla Björnsdóttir. Sérstaklega er mælt með því að foreldrar hafi samband við verkefnisstjórana fyrir hádegi til að minnka álagið á símanum meðan börnin eru á frístundaheimilinu. Einnig er hægt að senda tölvupóst til þeirra. Netföng þeirra má finna undir flipanum starfsfólk á heimasíðunni.
