Í Aðalnámskrá grunnskóla - lífsleikni kemur fram að allar námsgreinar grunnskóla fela í sér lífsleikni. Samþætting er því mikilvæg og er reynt að tengja lífsleikni við aðrar námsgreinar eins og kostur er. Lögð er sérstök áhersla á að efla og treysta félagsvitund og frumkvæði nemenda, styrkja sjálfsmynd þeirra og sjálfstæði. Ýmsar leiðir eru farnar til að ná fram þessum markmiðum. Sem dæmi má nefna hefðir sem skapast hafa í skólastarfinu: föstudagssamvera, íþróttadagur, jólaskemmtun, menningarvaka, skólabúðaferðir, sumardagar, útivistardagur, vettvangsferðir, ömmu- og afadagur og þjóðernisdagur. Ennfremur hefur sérstaða skólans s.s. skapandi umhverfi, fámennir árgangar, náið samstarf kennara og starfsfólks styrkt þessi markmið.
Lífsleikniþemu
Lífsleikniáætlun Ártúnsskóla skiptist í fjögur svið í stað tveggja í aðalnámskrá grunnskóla í lífsleikni: Sjálfsþekking, samskipti, sköpun og lífsstíll; Samfélag, umhverfi, náttúra og menning; Sérstakar áherslur í Ártúnsskóla og Verkmappa. Þegar fengist er við sviðið Sjálfsþekking, samskipti, sköpun og lífsstíll er athyglinni beint að félagsfærni nemenda, samskiptahæfni þeirra, að nemendur geri sér grein fyrir góðum og slæmum áhrifum sem þeir verða fyrir og að þeir læri að greina þar á milli. Sviðið Samfélag, umhverfi, náttúra og menning felur m.a. í sér að nemendur öðlist samfélagslega yfirsýn, læri að bera ábyrgð á eigin lífi, þekki og hafi innsýn í það að vera neytandi, þroski með sér alþjóðavitund og fái tækifæri til að njóta útiveru og menningar. Sviðinu Sérstakar áherslur í Ártúnsskóla er ætlað að endurspegla enn frekar stefnu skólans.
Áhersla er lögð á að nám lífsleikniáætlunarinnar sé metið og notaðar fjölbreyttar matsaðferðir sem hæfa markmiðum og endurspegla áherslur í lífsleiknikennslu. Verkmöppur eru taldar vel til þess fallnar að meta færniþætti í lífsleikni og munum við leggja þá aðferð til grundvallar mati á vinnu nemenda. Í Verkmöppu er safnað a.m.k. einu verkefni fyrir hvert námsár. Megináhersla er á að nemendur hafi á einum stað verkefni sem tengjast markmiðum í lífsleikni og að þeir skilji gildi þess að eiga safn vinnu sem þeir geta sýnt og verið stoltir af. Þessi aðferð hvetur nemendur til að vera vakandi yfir styrkleikum sínum og veikleikum þar sem þeir eru í stöðugu sjálfsmati er þeir velja í verkmöppur. Við lok 7. bekkjar á nemandinn í fórum sínum að minnsta kosti eitt verkefni fyrir hvert skólaár.
Við markmiðssetningu var aðallega stuðst við Aðalnámskrá grunnskóla - lífsleikni og lokaverkefni í námsráðgjöf Námsráðgjöf fyrir alla grunnskólanemendur - Lífsleikniáætlun (maí 2000).
