Heimsókn frá Kvarnaborg
Mánudaginn 22. febrúar 2010 kom skólahópur frá leikskólanum Kvarnaborg í heimsókn á skólasafnið. Birgitta skólasafnskennari tók á móti hópnum og las söguna af Dimmalimm eftir Guðmund Thorsteinson (Mugg). Börnin hlustuðu af athygli og teiknuðu myndir úr sögunni sem síðan voru límdar á karton. Í lok heimsóknar tóku börnin bækur að láni og kvöddu sæl og glöð.
