Skólahópur Regnbogans í heimsókn á skólasafni
Mánudagana 11. og 18. janúar komu kátir krakkar frá leikskólanum Regnboganum í heimsókn á skólasafnið. Í upphafi hlustuðu skólahóparnir á fróðleik um kærleikann sem er lífsleikniþema skólans um þessar mundir. Börnin hlýddu einnig á lestur sögunnar um Bálreiðu Bínu sem þau myndskreyttu af mikilli vandvirkni. Myndirnar voru síðan límdar á karton og fengu börnin að taka það með sér á leikskólann. Að lokum fengu börnin að velja sér bækur að láni. Börnin voru bæði stillt og prúð og það var virkilega skemmtilegt að fá þau í heimsókn.
