Um skólasafnið

Á skólasafninu iðar allt af lífi og fróðleiksfúsum krökkum. Safnið er staðsett miðsvæðis í skólanum og hefur verið stækkað allverulega.  Safnið er opið alla virka daga á starfstíma skólans. Safnkosturinn er tölvuskráður og auðveldar það öflun og úrvinnslu upplýsinga.

Hver bekkur hefur fastan tíma á skólasafni og gefst kostur á fleiri tímum þegar þörf er á. Nemendur geta fengið lánaðar eina til tvær bækur heim til tómstundalesturs. Þar að auki fá nemendur lánaðar ýmsar bækur til verkefnavinnu. Hver nemandi má því hafa allt að sex bækur að láni í senn og útlánstími er tvær vikur.

Bóka- og gagnaeign safnsins er um tólf þúsund eintök. Á safninu má finna fjölbreytt úrval skáldrita og fræðibóka, skemmtileg tímarit, myndbönd, hljóðbækur og margmiðlunardiska. Nemendur eiga greiðan aðgang að safnkostinum að frátöldum myndböndum og margmiðlunardiskum.

Skólasafnskennari er:  Birgitta Thorsteinson.