Skólinn

Við upphaf skólaárs 2012- 2013 voru skráðir 144 nemendur í grunnskólann á aldrinum 6 - 12 ára í  7 bekkjardeildum og því einn bekkur í árgangi.  Flestir þessara bekkja eru fjölmennir eða allt að 26 nemendur í árgangi.  Unnið er með alla árganga í anda samvinnu og samstarfs eins og um einn námshóp væri að ræða.

Kennsla er skv. stundaskrá kl. 8:30.  Að jafnaði stendur skóladagur skv. stundaskrá í grunnskólanum frá kl. 8:30 til 13:40/14:15. Skólinn er opnaður kl. 8:15 fyrir nemendur.

Á leikskólanum eru 66 börn á þremur deildum. Opnunartími á leikskólanum er 7:30 - 17:00.

Forföll nemenda á að tilkynna á skrifstofu skólans í upphafi skóladags í síma 567-3500.

Skrifstofa skólans er opin mánudaga til föstudaga frá kl. 8:00 - 15:00. Á miðvikdögum er skrifstofan opin til kl. 16:00.

Símanúmer skólans eru: Grunnskóli 567-3500 | Leikskóli 567-3199 | Skólasel 517-3531. 

Netfang skólans er This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.