Föstudaginn 8. febrúar stendur nemendafélag skólans FUÁ í samstarfi við stýrihóp Heilsueflandi skóla fyrir appelsínugulum degi. Þennan dag mæta allir í einhverju appelsínugulu og gæða sér á appelsínugulu nesti og ávöxtum í hádeginu.
Heilsueflandi skóli
Heilsueflandi skóli
Um leið og við óskum ykkur öllum gleðilegs nýs árs langar okkur að minna á mikilvægi þess að koma með hollt og gott nesti í skólann. Góð næring er m.a. nauðsynleg til þess að viðhalda orku og vinnugleði út skóladaginn.
Föstudaginn 23. nóvember stendur FUÁ fyrir fjólubláum/bláum degi í skólanum. Þennan dag ætla allir að koma í einhverjum fatnaði í fjólubláum eða bláum lit og reyna jafnframt að koma með hollt nesti í sama lit.
Nú er um að gera að leggja höfuðið í bleyti og finna einhvern hollan og góðan mat í fjólubláum eða bláum lit

Nokkrar hugmyndir: Vínber,bláber og plómur
Eins og flestir vita er afar mikilvægt fyrir heilsuna að borða hollan mat. Í grænmeti og ávöxtum eru ýmis holl og góð efni sem geta hjálpað líkamanum til að viðhalda góðri heilsu. Rannsóknir hafa auk þess sýnt að mikil neysla á ávöxtum og grænmeti geti minnkað líkur á mörgum alvarlegum sjúkdómum.
Sem dæmi má nefna að ber eru rík af af vítamínum, steinefnum, trefjaefnum og ýmsum öðrum hollustuefnum. Það er sérstaklega mikið af C-vítamíni og talsvert af E-vítamíni í aðalbláberjum og bláberjum. Bæði þessi vítamín eru andoxunarefni sem hindra myndun skaðlegra sindurefna í frumum líkamans (landlæknisembættið, 2005).
Einn liður í vinnu skólans með lífsleikniþemað skólabrag á þessari önn er svo kölluð „Yndisstund" sem verður þriðjudaginn 13. nóvember. Þennan dag mega nemendur koma með vasaljós og teppi í skólann. Nemendur munu m.a. hitta vinabekk sinn þennan dag og vinir lesa saman undir teppi með vasaljós.
